Shitgoose
03.09.2006 13:24:51 / Kári

nenni þessu ekki lengur

ég er löngu hættur að nenna að blogga eitthvað hérna þannig að þetta er síðasta færslan í bili ef ekki bara sú allra síðasta

bæ bæ
kári

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 18:31:33 / Kári

Versló

Þetta var hin ágætasta verslunarmannahelgi. Ég fór í gott partí til hans Sigga á föstudeginum en nennti ekki í bæinn það kveldið. Á laugardeginum fór ég svo á kaffi Karólínu og átti þar góðar stundir með góðum drengjum en þetta er ekki þess vert að skirfa um.  Það var sunnudagskveldið sem stóð upp úr í þetta skiptið.  Ég kaus að vera edrú það kvöld og fara og sjá flugeldasýninguna ásamt Höllu minni og hennar fólki, að vísu skildust leiðir okkar við foreldra hennar en við Halla fundum okkur góða laut til að horfa á sýninguna í.  Þessi sýning var þroskaheft í alla staði, ég hef aldrei farið á svona sýningu um versló og held bara að það hafi verið mistök að missa af því öll þessi ár.  Þvílíkar bombur sem voru þarna í gangi, þjófavarnir á bílum fóru í gang og svo sprakk ein sprengjan á jörðinni. Rómantíkin í algleymingi.  Það var helvíti gott.  Ég skeit reyndar á mig með það að éta Hlölla báta um helgina en það er svo sem í góðu lagi þar sem það styttist í að við séum að fara flytja suður í borg þar sem af Hlöllanum er nóg.

Segi þetta gott í bili
Adios

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 12:04:41 / Kári

Er á lífi

Þá er maður búinn að koma sér norður til Akureyrar og gjörsamlega búinn að skíta á sig....þannig er mál með vexti að planið um að fara til útlanda í einn mánuðu skeit á sig.  Vinir mínir þeir magnús blöndal og siggi hraunuðu í brækur með að fara og ekki nennti ég að fara einn til evrópu í mánuð þannig þetta lagði upp laupana. En það er samt mjög gott að vera kominn aftur í aflöppun á hér heima. Planið er einfalt.  Sofa út, refsa lóðunum og koma sér í rosa form...drekka eins og svín og hafa það gott.

Til að bæta sjálfum mér upp interrail klúðrið ákvað ég að kaupa mér Gibson SG Standard gítar sem mig hefur alltaf langaði í.  Það var ekki ókeypis heldur kostaði gripurinn 168000kr og er á leiðinni til landsins...helvítið á honum.  Góðar fréttir af Múskat eru einnig á borðum...lagið Sparta fór í spilun á xfm en því miður hef ég ekki aðgang af útvarpi þannig ég hef aldrei heyrt lagið spilað:)  Annars fór ég að' spá hvað það var langt síðan ég bloggaði síðast.. úff maður það er langt hehe

Jæja það er víst semí ættarmót úti í Hrísey sem ég á að vera á þannig ég er outííí 

bæj bæj

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.06.2006 20:22:03 / Kári

Af vinnuölkum og alkaölkum

Hæ og sælt veri fólkið. Long time no see eins og maðurinn sagði. Ég er ekki dauður enþá...er að vinna í því eins og þið hin. Er núna staddur á Hringbrautinni þar sem ég bý nú ásamt honum Heimi vini mínum. Er skítblankur og orðinn mikill vinnualki í staðinn fyrir gamla alkann sem var alltaf fullur. Núna er ég bara lokaður inni í byko sem er líka á Hringbraut. Hljómar frekar súrt en er fokkin geggjað. Mjög flott íbúð og svo þegar maður á frí tekur gamli alkinn upp völd yfir vinnualkanum og refsar flöskunni og djammar af sér það litla vit sem eftir er. Skeit líka yfir þessi fokkin próf og er bara með þessar líka fínu einkunnir.

Er bara feginn að hafa ekki nennt norður í sumar...nó diss ríspekkt samt fyrir AK city það er flottur bær...ég er bara svolítið búinn með kvótann þar á bæ. Hlakka samt bara nokkuð til að koma í heimsókn til mömmu gömlu og geita pabba í júní. Nánar tiltekið þann 16 júní en þá er planið að refsa flöskunni með vinum og vandamönnum

bless bles s



» 4 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 13:22:34 / Kári

Skítþunnur

Þá eru prófin búin og maður situr hér skítþunnur á þriðjudegi.  Við félagarnir tókum hressilega á því í gær og ég fór í bjórkynningu í vífilfelli þar sem ég hellti mig öskrandi fullan og það var gott.  Nú er hinsvegar verið að borga manni fyrir gleðina með höfuðverk frá helvíti og óbragði í munni sem jafnast á við öskubakkasót.  Maður fagnar því fríi sínu þunnur og sæll...vonar að prófin hafi gengið upp en veit þó fátt.  Byrja að vinna á fimmtudaginn og það verður án vafa frekar leiðinlegt og svo eru fluttiningar út á Hringbrautina einnig í burðarásnum.  En djöfullinn hafið það...nenni ekki þessum timburmönnum!!!! 

BÆJ


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 17:29:29 / Kári

Smá auglýsing...

Allir að fara á rokk.is og downloada nýja laginu okkar sem heitir Sparta, það er á myspace líka en þar er ekki hægt að sækja það, þannig að ef ykkur langar að ná í það þá er rokk.is staðurinn til þess.

Annars lítið af mér að frétta nema að ég er í prófum og nenni ekki að skrifa neitt um það að svo stöddu.

Bæjó!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 03:05:06 / Kári

Tilkynning!!!!

Allir að skoða myspace-ið okkar í Múskat. Slóðin er www.myspace.com/muacuteskat
Þar er að finna tvö ný lög með okkur sem heita Sparta og Lífshlaup/Byssuhlaup, og svo tókum við Drulluna í haunum á mér upp aftur. Tókum þetta upp í rosa stúdíói og Friðfinnur Sigurðsson sá um upptökur.

Endilega tékkið á þessu og svoleiðis:)

Bæ bæ
Kári

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 00:28:45 / Kári

Búhú kerfið brást okkur...

Maður er aktívur í bloggi núna enda hef ég svo sem ekkert skárra að gera akkúrat núna.  Ég var að horfa á kvikmyndina the Beach en það er ein af þessum myndum sem reyna að fá mann til að hugsa um efnahyggju-menningu okkar nútíma samfélags.  Fleiri slíkar myndir eru til og ber þar helst að nefna Fight Club, en þar er tekið líf uppans eða bara hins venjulega meðaljóns og það krufið til mergjar.  Við erum öll sama syngjandi, dansandi, borðandi, ríðandi, sofandi drulluklessan.  Þessi hugsunarháttur er kannski ekki sá allra bjartsýnasti enda viðfangsefnið líf okkar, hvernig sem á það er litið.
Ég heillast einhvernveginn alltaf af þessum hugsunarhætti.  Hvað erum við orðin, hvað erum við að gera? Eru ekki flestir í dag metnir eftir því hvað talan á bankabókinni er há eða hvernig hús maður á, bíll, fatamerki og svo framvegis.  Af hverju segir maður ekki bara skilið við þetta allt og fer eitthvað með vinum sínum til einhverrar eyju, slappar bara af og hefur það kósí.  Erum við ekki orðinn allt of föst í þeim þanka gangi að allt þurfi að vera á beinu brautinni.  Líf hins típíska er einhvern veginn svo svipað, við fæðumst, förum í skóla og erum þar út menntaskólann.  Sumir segjast þurfa hvíld og vinna í eitt ár áður en þeir halda áfram námi í háskóla í einhverri leit af gráðu sem á svo að tryggja eitthvað fullkomið kjarnafjölskyldulíf.  Aðrir fara ekki í skóla og ýmist elta drauma sem iðulega klikka eða vinna bara.  Sumir reyndar finna sig og allt í góðu með það, enda hljóta sumir að vera ánægðir því annars værum við ekkert að eltast við drauma.  Það er samt þessi ímyndaða beina braut sem við bjuggum sjálf til sem er að fara í taugarnar á mér.  Við búum ekki til samfélagið lengur heldur býr samfélagið okkur til.  Það er ekki rétt eða er það?? 
Kannski eru þetta bara barnalegar vangavelltur um eitthvað sem býr bara í hugsjónum letingja sem nenna ekki að vinna eða fara í skóla og skýla sér svo á bak við einhverjar hugmyndir sem að hljóma vel en eru í raun aldrei mögulegar.  Ég veit bara það að fullt af fólki sem ég þekki eltir bara strauminn, fer í skóla að því að aðrir gera það eða fara að vinna af því vinirnir fóru ekki í skóla.  Spurning um að vera bara frumlegur og hætta þessu öllu, fara ganga um nakinn og helst að labba á höndunum bara til að vera öðruvísi...nei djók, kannski ekki alveg það sem ég er að meina...ætli ég sé ekki að bara orðinn sick off it all. 
Fokk it það er svo gott að rembast hér fyrir framan tölvuna á háskólagörðunum og hugsa hvurn djöfulinn maður er að gera, 21 árs og ekki búinn að sjá helminginn af því sem maður vill.  En hey maður getur alltaf snúið við blaðinu og hætt í skóla og hætt að vinna þannig ég hitti ykkur öll bara úti á Keflavíkur flugvelli, stefnum bara til Thailands, Kína eða bara Rassgat.

Later
Kári

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 22:53:48 / Kári

OHHH svona blogg

Lítið að gerast hjá mér þessa daganna, búinn að fá slæmar fréttir og búinn að fá góðar fréttir.  En gengur lífið ekki út á plúsa og mínusa, við ráðum bara hvoru við gerum meira úr. Nenni ekki að skrifa neitt um hvorugt.  Það sem er núna vakandi yfir manni eru náttúrulega helvítis prófin og ég verð að viðurkenna að maður hefur oft verið mun betur í stakk búinn en núna.  Vonandi skítur maður ekki upp á bak, vona að ég nái öllu þannig ég fái námslánin sem ég ætla að eyða í interrailið í sumar.  Það er svona það sem er að halda manni gangandi...hugsa um allt sukkið og svínaríið sem mun fara fram í borgum evrópu...Fékk reyndar að öllum líkindum sumarvinnu þannig ég verð fyrir sunnan í sumar, það gekk eftir sem er gott.  Djöfull er maður eitthvað súr...geðveikt að tala við sjálfan sig og að hlusta á fokkin The Deliverence theme-ið á meðan maður ritar þetta.  Spurning um að bóka tíma hjá sálfræðing.

Nú tekur hinsvegar við hið undurfagra verk eftir Beethoven, Ode to joy, sem er kaldhæðnislegt þar sem maður er ekkert í skýjunum þessa dagana, hahah samt geðveikt lag.  Með bros í hjarta og klofinn huga kveð ég ykkur að sinni...

bless

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 22:45:39 / Kári

Rokk, rothögg og kynskiptingar!!!

Þessi helgi fyrir norðan var bara snilld.  Okkur gekk vel að spila og þá sérstaklega á Húsavík, vorum eitthvað riðgaðir í húsinu en skiluðum settinu nokkuð þéttu þó.  Var allavega mjög góð mæting og fínasta stemming.  Fylleríin voru hinsvegar svo hrottalega skrautleg að það er vart lýsandi.  Á föstudeginum fékk ég þá flugu í hausinn að tækla Sæskrímslið (Gunni í Nevolution) svona Rugby style.  Hann var að tala í símann þegar ég kem hlaupandi á fullu spani beint í miðjan kviðinn á honum.  Gunni sem er nú ekki lágvaxinn maður hendist í heljarstökk eins og í væminni amerískri mynd og lendir á andlitinu í snjóskafli.  Það góða við þetta allt var að hann var að tala í símann þegar þetta átti sér stað og hélt kúlinu allann tíman með því að tala bara áfram í símann í loftinu og í lendingunni.  Svo þannig enduðum við Sæskrímslið það kvöldið, báðir í ruglinu í einhverjum snjóskafl með hausinn á hvolfi eins og strútar. Gott shit.

Laugardagurinn var þeim mun skrautlegri.  Fórum til Húsavíkur og spiluðum í hvalasafninu sem var bara mjög gaman, þegar giggið var búið ákváðum við að brenna beint til Akureyrar til að fara á fyllerí.  Ég var þyrstur eftir allt gargið og kláraði bjórinn minn á leiðinn í bæinn sem er mettími held ég bara.  Varð sauðdrukkinn en það var allt í lagi því það var jú planið.  Þegar við drengirnir í Múskat komum heim til mín fór ég að segja hetju sögu af sjálfum mér þegar ég hoppaði fram af svölunum heima hjá mér, þetta er ekkert rosa hátt, kannski tveir og hálfur þrír metrar.  Eiður byrjaði að egna mig til að hoppa niður og sanna mál mitt.  Ég leit út um gluggann og sá að það var snjór undir svölunum og sagði stollur "ókei ekkert mál, nú sjáum við hver hefur pung!" 
Ég fer í skóna og labba upp stigann heima, fer í gegnum svefnherbergi foreldra minna þar sem faðir minn virðulegur liggur í svefnmóki.  Pabbi segir "hvað ertu að gera vinur?" Kári í brennivínsmóki svara "ég er að fara hoppa niður að svölunum" og í sömu andrá hoppa ég niður.  Hvað ætli pabbi hafi haldið???
Þegar ég lendi þá var það sem betur fer á löppunum en þær sukku niður að hnjám í snjóinn, það sem var klúðrið í þessu öllu saman var það að pabbi hafði mokað krapi fyrr um daginn sem hafði frosið ofan á púðrinu og myndað bara nokk harða skel sem ég skallaði þegar ég lenti.  Ég fékk pínu sprungna vör, skrámu á nefið og trúlega vægan heilahristing þar sem ég steinlá í smá stund í snjónum að sögn strákanna sem á þessar hrakfarir horfðu.  Þetta var nú samt allt í góðu gríni gert og ég sagði pabba hvernig í pottinn var búið þegar ég hitti hann inni í stofu eftir skellinn.  Hann sagði mig vera búinn að missa vitið.

En þá að aðalsögu kvöldsins því það var langt því frá búið þó svo ég væri búinn að hálfrota mig.  Fannar gítarleikari lenti í því óhappi að einhver stelpa var að reyna við hann en þar sem Fannar er í hamingjuríku sambandi við hana Sigrúni sína var þessi stelpa ekki að fara fá neitt.  Þegar Fannsi fór á barinn að fá sér öl sá hann að kynskiptingurinn Díana Ómel sat þar að sumbli, þegar stelpan vatt sér að Fannsa sagði hann við hana "togaðu í hárið á henni til að gá hvort það sé ekta".  Í dýrðarljóma heimskunnar fer þessi stelpa til Díönu Ómel og togar í hárið á henni eða honum...

Díana snýr sér þá við og kýlir þessa stelpu í andlitið svo það liggur við rothöggi.  GOD DAMN! að hafa verið að pissa þegar þetta gerðist því ég sá þetta því miður ekki en drengirnir sögðu mér allt af létta þegar við vorum búnir að forða okkur út af Amour.

Já það er aldrei lognmolla í kringum okkur drengina þegar við sleppum í sprúttið en þess má til gamans geta að hárið á Díönu Ómel er ekta og vil ég hér með benda fólki á að láta það eiga sig að vera toga mikið í það...

Bless bless
Kári

» 15 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 12:24:08 / Kári

Tónleikar!!!

Þá er maður bara að fara norður að spila á rokktónleikum...hvet alla skítana fyrir norðan til að mæta og fara svo á fyllerí á eftir því það er svo hollt.  Erum að spila um níuleytið í nýja húsinu á akureyri sem er víst til húsa í gamla barnaskólanum. Svo er Húsavík daginn eftir en þar spilum við með nevolution, morðingjunum og tony the pony. Sem sagt sömu bönd og á akureyri fyrir utan tony the pony.  Það er alveg spurning um að verða fullur bæði kvöldin, við Múskat menn erum þekktir fyrir allt annað en edrúmennsku og þar af leiðandi kjörið að hrynja í það bæði kvöldin eins og hertogar. En jó jó jó var bara að segja fólki frá þessu rugli

bæ bæ

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 02:47:48 / Kári

Smá pása frá daglegu amstri

Þegar maður tekur sér tíma frá daglegu amstri og fer að hugsa um hverskonar verur við erum, getum við þá komist að einhverjum niðurstöðum? Ég var að velta fyrir mér tilgangi haturs ef einhver tilgangur er með þeirri tilfinningu eða hvöt.  Sem dæmi um hatur í heiminum má nefna kynþáttahatur.  Fólk sem þjáist að slíkum ranghugmyndum leifi ég mér að fullyrða er drifið áfram af hatri og hatur er birgði. 
Spurning sem manneskja sem er drifin áfram af (kynþátta)hatri getur í raun tortímt öllum slíkum pælingum með því einu að spyrja sig einnar einfaldrar spurningar.  Hefur eitthvað að því sem þú hefur gert, bætt líf þitt?  Þegar vel er að gáð þá er kynþáttahatur ekkert annað en reiði og hatur sem beinast að misjöfnum ástæðum að einhverjum hópum innan samfélagsins.  Fólk talar um vanþekkingu og að fáviska sé orsök kynþáttafordóma.  Ég er ósammála þeirri pælingu einfaldlega sökum þess að nautheimskir einstaklingar eru ekkert endilega haldnir þessum skoðunum og jafnframt á vel menntað fólk það til að vera haldið sjúkum fordómum sem byggðir eru að mínu mati á þessu hatri.  Ef maður spáir í því þá er hatur í raun tilgangslaust því öll sækjumst við eftir ánægju og hamingju í lífinu ekki satt? Hatur er sá eiginleiki sem kemur í veg fyrir takmark okkar og bætir aldrei líf okkar á neinn hátt.

Nú er ég búinn að skíta yfir hatur og vera vel væminn í leiðinni.  Alltaf gott að koma svona dóti frá...

bless
Kári

» 8 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 12:31:18 / Kári

Lífið er gott og það er ekki verra ef maður er HULK

Það eru góðir dagar núna. Er búinn að fá mixið af drullunni og Lífshlaup/Byssuhlaup í hendurnar og þetta sándar bara rugl vel.  Gaman af þessu og nú bíður maður í óvæni eftir að fá lagði Sparta til baka úr mixingu.  En svo ég tuði meira um Múskat...þá erum við á leiðinni norður að spila helgina 31 mars til 1apríl og það verður nottlega rosalegt ef ég þekki okkur rétt hehe.

En hey svona af skólanum að segja þá var ég að fá 7,5 úr 50% prófi og get ekki annað en verið bara mjög sáttur með það. Life is swell!!

Samt hefur  nú lífið sínar skuggahliðar...t.d. áðan þá var ég eitthvað að brasast heima við og áttaði mig á því að ég þurfti að fara á dolluna að drulla.  Ekki að það sé neitt frásögu færandi að þurfa að skíta nema hvað að ég opna klósett hurðina og sé mér til mikillar skelfingar að þar er enginn klósett pappír!!! Nú voru góð ráð dýr...ég ætlaði sure as hell ekki að skíta á mig og heldur ekki að fara í sturtu þannig ég hljóp upp á fjórðu hæðina til hans Gunnars Líndal og bankaði eins og óður væri.  Þar opnaðist í þessu tilfelli hurðin af himnaríki og klósettrúlla var tekinn fegins hendi....síðan ætla ég ekkert að skrifa neitt um framhaldið...þið hjótið að geta púslað því saman.

En svo ég halli mér að ný-yrðasmíði minni, ég sat í makindum í gær og ræddi við Heimi á msn um heima og geima þegar upp í kollinn á mér skaust orðið HULK.  HULK er nú orðið sem ég nota um það þegar menn eru blindfullir,nökkvaölvaðir,hrútfullir,svartir,skeifuölvaðir,svínfullir,rúllandi-smekkfullir,
Gruntfullir, hellaðir á því og þannig mætti lengi upp telja.
"djöfull ætla ég að vera HULK um helgina dreng", er gott dæmi um það hvernig nota  má orðið HULK. Þess má einnig geta að orðið má ekki bera fram sem HÖLK heldur verður maður að segja HULK til þess að skilaboðin komist rétt til skila.  "Shit maður sáu þið hvað Kári var HULK um daginn, drengurinn er nottlega alveg búinn að skíta á sig". 

Það getur verið hin mesta skemmtan að leika sér með orðið HULK enda orðið með eindæmum fallegt í framburði...minnir mig einhvernveginn alltaf á ramma-massaðann og nökkva-köttaðann grænann kall sem átti eitthvað í erfileikum með að hemja skap sitt en það er önnur og verri saga.  Nú ætla ég að þrykkja niður á prent og gera ódauðlegar nokkrar HULK setningar og aðstæður þar sem auðkenna má hver er HULK.
1."Hey HULK er orðinn aftastur" á leiðinni í bæinn þá er sá sem er aftastur og slagar orðinn HULK.
2. "HULK er búinn að missa saur því hann tók of vel á því" þegar HULK missir saur vitanlega.
3."Hvað er að þér HULK!!!" Þegar HULK er búinn að æla á gólfið eða búinn að stinga undan besta vini sínum í brennvínsmóki.
4."Djöfull ertu ógeðslegur helvítis perrinn þinn!!!!" Þetta gerist þegar HULK kemst í snertingu við hitt kynið.
5."ég má þetta alveg" þegar HULK er tekinn af löggunni fyrir að míga á laugarveginum eða rúntinum á akureyri, eða eitthvað viðlíka rugl.

Þar hafi þið það...en nú nenni ég þessu ekki lengur og er að hugsa um að fara að læra eitthvað til tilbreytingar.

Bless og be less
Kári

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 17:40:31 / Kári

24 Hour party people eða eitthvað þannig...

SHIT!!!
GOtt að byrja færsluna svona sökum andlegrar og líkamlegrar þreytu. Við Múskat menn vorum allir í stúdíói í gærnótt og tókum þar upp þrjú lög.  Þetta stúdíó er fáránlega gott!!!Geðveikar græjur og sándið á upptökunum er mjög gott.  Friðfinnur tók okkur upp og er sá maður algjör snillingur.  Hef sem sagt mjög góða tilfinningu fyrir þessum lögum en við tókum upp þrjú lög á 11-12 klst þó svo ég og Friðfinnur höfum verið aðeins lengur að taka til og tölvumurtast eitthvað.  Lögin heita Sparta, Lífshlaup/Byssuhlaup og svo tókum við Drulluna í hausnum á mér upp aftur í mun betri gæðum en síðast.
Þetta var sjúkt dæmi....vorum mætti klukkann fimm um daginn og þá var byrjað á því að ná sándi á trommusettið sem tók slatta tíma enda sættir Eiður sig aðeins við hið besta hehe.  Þegar það var búið að ná góðu sándi hófust upptökur um klukkan átta eða níu man ekkert hvenær nákvæmlega.  Svo var tekið upp gítara og bassa.  Undir lokinn átti svo ég að syngja inn á lögin og síðasta vocal trackið var tekið upp sex í morgun. Þá var ég orðinn þreyttur og Friðfinnur var kominn með bauga niður á bringu.  Kom ekki heim fyrr en níu eða korter yfir níu og var orðinn alveg eins og Zombie á fylleríi.  Er enþá skítþreyttur og viðbjóðslegur, er á leiðinni í sturtu til að reyna bjarga því sem bjargað verður. 
En eins og fyrr sagði þá var þetta ógeðslega gaman þó þetta hafi verið fjórtán tíma törn og maður búinn að vaka í sólarhring, þetta var snilld!
Hlakka til að heyra þetta þegar búið er að mixa þetta og mastera, en nú ætla ég að drulla mér í sturtu.

Bless helvítin ykkar!

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 18:45:23 / Kári

Magister tekur til máls.

Löngum hefir það þótt ungum mönnum hollt að taka sér tíð frá önnum dagsins og lesa góð dókúment. Hefir það verið siður margra manna að taka það að sér að þýða hin ýmsu þrekvirki innan þess geira er vér köllum bókmenntir.  Það þarf aftur ekki að spyrja að því að í gegnum árin hafa verkaskítar haft það fyrir sið að brenna slík þrekvirki og er skemmst þess að minnast hrottafenginna atburða sem áttu sér stað í síðastgenginni viku. Er ég og minn trausti Stúdent sátum við borð eitt og neyttum koníaks dreytils og ræddum um konstrúktívisma 18.aldar þegar óðir menn ruddust þar inn og töluðu mál sem okkur var eigi kunnugt. Mál þetta minnti mig ólátlega á hið fágaða mál Látínunar en bar þó vott af austur-evrópskum uppruna, einhverskonar slavnesk áhrif. Þessir menn voru skítugir og að öllum líkindum í slagtogi við verkaskíta. Skemmst er frá því sagt að þeir æddu að Stúdentnum og hrifsuðu af honum dókúment sem innihélt forn-grískan texta sem Stúdent var hálfnaður með þýðingu á og kveiktu í honum fyrir framan nefið á Stúdentnum.  Við þetta reyddist Stúdentinn vitaskuld en ég hafði á honum hemil svo ekki kæmi til handalögmála enda er slíkt ekki fyrir hámenntað fólk.  Betra hefir mér ávallt þótt að fara hina diplómatísku leið og slátra svo þessum skítum eins og aumum hundum frammi fyrir altari réttlætisins.
Lítið er hægt að segja við geðveilu hins sturlaða heims en eitt er þó ávallt gott og blessað og svíkur mann seint.  Menntun.  Þeir sem öðlast slíka dyggð munu ganga í ljósi hinna fáguðu og munu aldrei skorta mat né drykk, aldrei munu þeir einir ganga því að í öllum samfélögum sem eitthvað vit er í eru háskólar sem innihalda menntamenn.  Það er hins vegar ekki hægt að tala um neitt sem heitir fágun við það að grafa skurði, ganga bognir með staf(sem er ekki einu sinni með gyllingu) eða hafa skít undir nöglum eins og frummenn.  Nei kæru vinir, ég er ljós heimsins eins og Jesú sagði, þeir sem munu með mér menntast munu aldrei glatast.

Virðingafyllst
MAGISTERINN.

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4